| Heimasíða Ísars Freys - munið eftir gestabók! |
| ég heiti Ísar Freyr og er 7 ára afmælisstrákur! |
|
|
Um mig:
Ég fæddist í Hreiðrinu þann 29 maí 2002. Fæðingin gekk bara vel þó svo að ég væri dálítið lengi á leiðinni en mamma var komin með 5 í útvíkkun kl. 8:30 um morguninn en ég er ekki fæddur fyrr en 21:39 hún lét nú samt ekki deigan síga og vildi engin verkjalyf. Ég var með svart hár og mjög dökk augu þegar ég fæddist og fyrstu vikurnar en núna er ég komin með skollitað hár og blá augu. Mamma mín heitir Hjördís og pabbi minn Jón Atli við búum í Reykjavík ásamt litlu systir minni henni Kristbjörgu Jóhönnu og litla bróðir mínum Hirti Bjarna.
|
|
|
|
Annað:
TVÍBURARNIR
21. maí - 21. júní Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu. MAMMA ER KONAN: sem kemur manni í heiminn með miklri fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsa meira meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er svo vön að hugsa vél um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með út rétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast með manni þegar gaman er að vera til. MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI:..... Hér getið þið skoðað heimasíður bumbuvina minna en við erum búin að þekkjast síðan við vorum í bumbunum á mömmum okkar! Pálmi Hrafn Siggi Sara Mist Hjalti Dagur Jón Arnar Rakel Jóna Kristófer Hallur Hrafntinna Margrét Hjalti Sævar Katrín Magdalena Hér getið þið líka sent mömmu póst Sendu mér póst Hérna er strumpapróf svo endilega kannið hvernig strumpur þú ert. ![]() |
| Þú ert gestur nr. 57206 |